Mjókkum, styttum og setjum upp gardínur úr Jysk, Ikea og Bauhaus.

Mjókkun og stytting gardína

Við tökum að okkur að mjókka allflestar gerðir tilbúinna gardína úr Rúmfatalagernum, Ikea og Bauhaus. Einnig styttum við strimla fyrir strimlagardínur.

Mælingar og uppsetning gardína

Við tökum að okkur að mæla fyrir gardínum og setja upp gardínur af allflestum gerðum hvaðan sem þær koma.

Annað

Við tökum að okkur önnur verkefni samkvæmt samkomulagi, t.d. að lagfæra eða mjókka gamlar gardínur. Athugið að í mörgum tilfellum getur verið hagkvæmara að fá sér nýjar gardínur þar sem talsverður tími getur farið í að finna varahluti í gardínur sem eru hættar í sölu.