Mjókkum, styttum og setjum upp gardínur úr Jysk, Ikea og Bauhaus.

Velkomin/n!

Við erum gardínuþjónusta sem þýðir að við seljum ekki gardínur heldur þjónustum þá sem eru með eða velja að kaupa sér tilbúnar gardínur. Við höfum sett ferlið upp í nokkur skref sem má sjá hér að neðan. Við getum aðstoðað með eitt eða fleiri af þessum skrefum.


Skref 1: Velja hvernig gardínur


+ Skref 2: Mæla fyrir gardínunum

Það er ekki hægt að tala um nein ,,venjuleg’’ mál á gluggum. Jafnvel þó gluggar á sama svæði líti út fyrir að vera sömu stærðar þá er oft ekki hægt að treysta á það. Því mælum við með því að mæla hvern og einn glugga nákvæmlega.

Ef að gardínan kemur inn í gluggann þá mælum við með því að mæla þann stað sem gardínan kemur, vegg í vegg. Ef annað er ekki tekið fram þá gerum við ráð fyrir að þessi aðferð hafi verið notuð við mælingar sem við fáum í hendurnar. Þegar kemur að því að mjókka gardínuna drögum við frá nokkra millimetra til að gardínan verði ekki stíf í glugganum og verður það heildarmálið á gardínunni með festingum.

Ef mælingar eru teknar á annan hátt en þann sem lýst er hér að ofan vinsamlegast takið það sérstaklega fram!

Ef eitthvað vafamál er með mælingar endilega hafið samband og fáið upplýsingar eða látið okkur um að taka málin! (sjá verðskrá)


+ Skref 3: Kaupa gardínurnar

Farðu á staðinn, láttu okkur um að kaupa gardínurnar fyrir þig (sjá verðskrá) eða pantaðu þær á netinu og láttu senda beint til okkar!


+ Skref 4: Breyta gardínunum svo þær passi

Sumar gardínur passa akkúrat en flestar þarf að sníða til svo að þær passi. Leiðbeiningar fylgja með mörgum gerðum af tilbúnum gardínum og sumir geta sniðið þær til sjálfir. En af mörgum ástæðum kjósa margir að láta gera þetta fyrir sig. Þetta er okkar sérsvið! (sjá verðskrá)


+ Skref 5: Uppsetning á gardínum

Leiðbeiningar um uppsetningu fylgir einnig oft með tilbúnum gardínum og kjósa margir að setja þær upp sjálfir. En sumir kjósa að láta aðra um uppsetninguna og tökum við það einnig að okkur. (sjá verðskrá)


Hafðu samband

Taktu fyrsta skrefið/skrefin og láttu okkur svo vita hvar í ferlinu þú vilt fá okkar aðstoð!